Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stuðlar að framúrskarandi menntun og farsæld allra barna og ungmenna. Þetta gerir hún með öflugum stuðningi og markvissri þjónustu við leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt.

Námsefni
Eitt af hlutverkum Miðstöðvar menntunar er útgáfa námsefnis sem styður nemendur í námi og kennara að störfum.

Matsferill
Miðstöð menntunar leggur sig fram við að styðja við nám og kennslu með þróun matstækja. Matsferill er safn matstækja sem skólar geta nýtt til að kanna stöðu nemenda í ákveðnum þáttum í námi þeirra.

Skólastigin
Þau skólastig sem miðstöð menntunar þjónustar eru leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólastigið.

Aðalnámskrá
Aðalnámskrár fyrir leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og listaskóla eru gefnar út af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Miðstöð menntunar leiddi vinnu við endurskoðun aðalnámskrár grunnskóla og stendur fyrir gerð ýmiskonar efnis sem skólar og kennarar geta nýtt við innleiðingu og vinnu sem tengist námskránni.

Stafræn þróun
Það eru ýmis verkefni í gangi hjá Miðstöð menntunar byggja á innleiðingu og þróun stafrænna lausna.

Farsæld nemenda
Miðstöð menntunar rekur skólaþjónustu og nokkur verkefni sem snúa á einn eða annan hátt að farsæld nemenda. Þar má nefna verkefni eins og Heillaspor, Föruneyti barna og MEMM auk landsteymisins sem byggir sitt starf á grunni farsældarlaganna.

Fréttir og tilkynningar
Innritun í framhaldsskóla hafin – fer nú fram í gegnum Ísland.is
Nú eru stór og spennandi tímamót fram undan í lífi 10. bekkinga landsins því innritun í framhaldsskóla fyrir skólaárið 2025–2026 er hafin. Þau nýmæli eru við innritunarferlið í ár að það fer nú alfarið fram í gegnum vefinn Ísland.is og því þurfa umsækjendur eða forsjáraðilar að vera með rafræn skilríki.
Hvernig kenni ég ritun?
Við höfum gefið út nýtt verkfæri fyrir kennara til að styðja við ritunarkennslu í grunnskólum landsins. Verkfærið hefur hlotið nafnið Ritunarramminn, en hann veitir kennurum leiðsögn varðandi ritunarkennslu og mat á ritun þannig þeir geti á skilvirkari hátt skipulagt ritunarkennslu sína og veitt nemendum endurgjöf sem gagnast þeim til aukinnar ritunarfærni.