Frétt
Sproti 3A – Æfingahefti
Sproti 3A– Æfingahefti (vörunr. 6211) er því miður uppseld hjá Námsgagnastofnun. Verið er að endurskoða námsefnið Sproti 3A í samræmi við breytingar norsku útgefendanna. Næsta sumar verða nýjar og breyttar útgáfur af æfingaheftinu og grunnbókinni væntanlega komnar út. Af þeim sökum verður eldri úgáfa ekki endurprentuð.
Fáeinar biðpantanir vegna æfingaheftisins liggja fyrir hjá Námsgagnastofnun og viljum við vinsamlega biðja skóla sem kunna að liggja með ónotuð eintök af bókinni að skila þeim, svo hægt verði að miðla þeim eintökum til skóla sem nauðsynlega þurfa á þeim að halda.
Skrifað 23. jan. 2012.
