Pistill

Dagur stærðfræðinnar

Dagur stærðfræðinnar er fyrsta föstudag í febrúar og í ár ber hann upp á 3. febrúar. Margir leik-, grunn- og framhaldsskólar hafa haldið daginn hátíðlegan undanfarin ár. Markmið með degi stærðfræðinnar er að vekja nemendur og aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu. Einnig að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjá hana í víðara samhengi. Nánari upplýsingar um dag stærðfræðinnar má nálgast á vefsíðu Flatar, sem eru samtök stærðfræðikennara.

Í námsefninu Leikir og þrautir eru fjölbreytt verkefni sem reyna á ýmsa þætti stærðfræðinnar. Mörg verkefnanna henta fyrir allan aldur þó að nemendur á ólíkum aldri kunni að nálgast þau á misjafnan hátt. Í þemaheftum Námsgagnastofnunar er einnig að finna margvíslegar þrautir sem gaman getur verið að spreyta sig á í tilefni dagsins. Í þemaheftinu Pælingar (bls. 12) er t.d. skemmtilegur leikur sem krefst skilnings á margföldun og þáttun:

Þetta er leikur fyrir tvo keppendur. Hann byggist á því að fyrsti keppandi velur sér slétta tölu undir 50 og strikar yfir hana í 100-talna töflu. Mótspilarinn velur sér töku sem er annaðhvort þáttur í eða margfeldi af tölunni sem fyrsti keppandinn valdi. Þannig skiptast keppendur á að nota þær tölur sem síðast voru strikaðar út af mótspilaranum. Sá sem getur ekki strikað út neina á tölu á blaðinu tapar.

Vinnublað má prenta út á bls. 14 í kennsluleiðbeiningum.

 

Námsgagnastofnun 2012 © Í dagsins önn – Mynd: Ingimar Waage.


Skrifað 02. feb. 2012.
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi