Velkomin á vef með ljóðum á ensku
Á þessum vef er hægt að læra um 20 enskumælandi ljóðskáld og kynnast einu ljóði hvers þeirra.
Skáldin voru uppi á tímabilinu 1750-1940 nema Shakespeare, sem er hér með vegna stöðu sinnar í enskum bókmenntum.
Ljóðunum er skipt í fjóra efnisflokka og undir þeim eru síður fyrir hvern höfund með ljóði hans og æviágripi.
Í textanum eru orðskýringar og á hverri síðu eru tvö verkefni, annað gagnvirkt en hitt ritunarverkefni til útprentunar. Einnig er hægt að heyra ljóðin lesin upp.

Helstu markmið þessa námsefnis eru:
að nemendur kynnist nokkrum helstu ljóðskáldum enskrar tungu
að nemendur kynnist einu ljóði hvers þeirra
að nemendur læri að þekkja ensk orð í gömlum myndum
að nemendur þjálfist í að lesa og skynja hrynjandann í ljóðunum
að nemendur geti túlkað efni ljóðsins og sagt frá því
að hvetja nemendur til áframhaldandi ljóðalesturs og jafnvel ljóðagerðar
að hvetja nemendur til að skilja eigin tilfinningar og hugsanir og tjá sig um þær

Nokkrar gagnlegar ábendingar:
Hver ljóðlína byrjar ávalt á stórum staf, þannig að til að skilja betur ljóðið þarf að hafa í huga að lesa eftir greinamerkjum en ekki línum.
Verkefnunum er ætlað að hjálpa nemendum að skilja og túlka ljóðið og einnig til að
átta sig á og tjá eigin tilfinningar og hugsanir.

Mynd á forsíðu er af málverkinu "Pinkie" eftir enska málarann Thomas Lawrence.

Höfundur: Málfríður Kolbrún Guðnadóttir
Upplestur: Oliver Kentish
Grafísk hönnun:Jóhann Heiðar Jónsson